S K A U T A R
27.01.2012 09:02:16 / Ester

Eikarmót

Liðskipan á Eikarmót

Skautar-A:
Gúa
Hófí
Kristjana
Ólöf
Helga Guðrún
Hrafnhildur

Skautar-B:
Ester
Día
Þorgerður
Margrét laugardag
Thelma
Halla H.
Guðrún
Halla Jens föstudag
Dagbjört föstudag

Sjáumst hressar á morgun :)
Kveðja,
Þura


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.01.2012 16:49:22 / Guðrun

Eikarmót

Hæ skvísur :p

Við hjónakornin erum hætt við leikhúsferð þannig að ég get tekið fullan þátt í Eikarmótinu ;:haha:

Sjáumst hressar annað kvöld :p

Kveðja
Guðrún

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.01.2012 17:38:54 / Magga

Nýjustu og heitustu fréttir af Þorramakablaki.

Sælar allar. Ákveðið hefur verið að hafa Þorramakablak laugardaginn 11. febrúar. Byrjað verður í blaki á Þelamörk kl. 14 - 16. Einn völlur sem þýðir mörg lið, stuttir leikir og margir áhorfendur. Alvöru fjör. Hægt að hafa með börn og gera fjölskyldudag úr þessu. Sundlaugin er opin til kl. 17. Seinni hlutinn byrjar svo kl. 20 ....Þorrablót. Staðsetning og GPS punktar gefnir upp síðar en þó reiknað með póstnúmeri 600/603. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku og hvort þið hafið áhuga á þorramat, einum skammti eða fleiri svo hægt verði að gera sér grein fyrir umfangi og kostnaði. Það er alveg mögulegt að hafa margréttað. Hver sérgrein innan hópsins sér um að minnsta kosti eitt skemmtiatriði.

» 8 hafa sagt sína skoðun

23.01.2012 09:56:31 / Ester

Dómaranámskeið

Dómaranámskeiðið verður haldið föstudaginn 27. janúar og hefst kl 16:00  í teríunni í íþróttahöllinni og má reikna með að það standi þar til Eikarmótið byrjar. Námskeiðið kostar í heildina kr. 60 þús og það fer eftir fjölda hvað það gerir á hvern þátttakenda. Gert er ráð fyrir að fólk greiði fyrir námskeiðið á námskeiðinu. Stjórn Skauta hefur ákveðið að greiða niður þátttökugjald fyrir þær Skautakonur sem sækja námskeiðið.

Vinsamlegast svarið þessum pósti til að hægt verið að áætla fjölda.

Þátttakendur geta undirbúið sig með því að lesa vel yfir leikreglur, hvort sem er á íslensku eða ensku – tillaga um vefsíður eru þessar

 http://www.bli.is/page/leikreglur

 http://www.fivb.org/EN/Refereeing-Rules/

 http://www.fivb.org/EN/Refereeing-Rules/MultimediaReferees2011/


» 15 hafa sagt sína skoðun

16.01.2012 09:03:56 / Ester

Dómaranámskeið

Skautakonur
Fyrirhugað er að halda dómaranámskeið í tengslum við Eikarmótið sem verður 27-28 janúar, námskeiðið verður líklega haldið á fimmtudeginum 26 jan eða á föstudaginn 27 jan fyrir mót það fer eftir þátttöku. Námskeiðið kostar 60-70 þúsund og skiptist á þátttakendur og skiptir þá ekki máli hvort fólk tekur héraðsdómarapróf eða ekki. Þær sem hyggjast læra til dómara vinsamlegast commentið á þessa færslu.
Stjórnin

» 14 hafa sagt sína skoðun

13.01.2012 19:01:41 / Magga

Þorramakablak

Er ekki best að hafa tvær helgar til að velja úr og setja stuðið á þegar fleiri geta mætt? Látið vita ef þið getið ekki mætt á laugardeginum 3ja febrúar eða 10. febrúar. Spil, sund, súrt, sukk......stuð.

» 18 hafa sagt sína skoðun

05.01.2012 15:44:53 / Ester

Völsungsmótið

Hérna koma liðin.

Skautar A :            
Gúa                      
Hófý
Kristjana
Helga Guðrún
Hrafnhildur
Margrét
Þorgerður

Skautar B :
Esther
Día
Halla H
Guðrún
Thelma
Erla

það er mæting kl. 07.15 í rútuna hjá KA-heimilinu hún fer ekki seinna af stað en kl. 07.30
Það kostar 1000 kr. á mann.

Sjáumst hressar á laugardagsmorgunn.

Kveðja, Þura


PS. Rútuferðin miðast við að við tökum teiti á þetta (áreiðanlegar heimildir) eþ

» 8 hafa sagt sína skoðun

02.01.2012 12:47:44 / Ester

Völsungsmótið

Það er klárt mál að það verða tvö lið frá okkur á Völsungsmótinu
Eftirtaldar verða með;
Hrafnhildur, Guðrún, Halla H, Helga Guðrún, Gúa, Kristjana, Erla Björk, Ester, Thelma, Hófí, Día, Þorgerður, Ólöf, Magga og Halla Jens
Halla Jens og Ólöf eru smá ? Aðrar hafa gefið grænt ljós fari tvö lið, og það fara tvö lið. Punktur og knús:evil:

» 6 hafa sagt sína skoðun

29.12.2011 12:43:22 / Ester

Völsungsmótið

Eftirtaldar hafa meldað sig á Völsungsmótið 7. jan n.k.
Hrafnhildur, Guðrún, Halla H, Helga Guðrún, Gúa,
Kristjana, Erla Björk, Hófí, Ester, Thelma (muna að hafa vaktaskipti),
Día, Ólöf ætlar að reyna og Þogerður á eftir að svara = 13 ef ef ekkert klikkar og það má ekkert klikka, hjá neinum, já, ekkert rugl hér. 
Við reiknum með að fara með rútu ef hin liðin taka þátt í því. Það er í skoðun.
Svo þarf að hugsa fyrir þessu;

Hlaðborð og partý!

Veitingastaðurinn Salka verður með pizza,pasta & súpuhlaðborð frá kl. 17:00  á kr. 1.950- Tilboð á drykkjum(öli).  Borðpantanir æskilegar, hægt að hringja í síma 464-2551 (Salka) eða senda póst á jonamatta@husavik.com og við komum því til skila. Eftir kvöldmat verður blakpartý í Sölku...höfum gaman saman

Stjórnin


» 13 hafa sagt sína skoðun

28.12.2011 16:00:45 / Ester

Æfing í kvöld

Æfingin í kvöld er á hefðbundnum æfingatíma og í kvöld verðið þið að svara því hvort þið ætlið með á Vöslungsmótið.

» 10 hafa sagt sína skoðun

21.12.2011 12:00:02 / Ester

Æfingin í kvöld verður í dag !!

Breyttur æfingatími í kvöld, æfingin verður frá kl 18:00 til 19:30
Fjölmennið og takið unglingana ykkar með.

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.12.2011 10:49:24 / Ester

Mánudagur

Kæru skautakonur
Á æfingunni í kvöld ætlum við að spila við KA-Freyjur og vonandi líka KA stelpur líka. Að æfingatíma loknum ætlum við að gæða okkur á einhverju góðgæti og þær sem geta, koma með veitingar, smákökur, nammi, snakk, drykki eða bara hvað sem er.  (engin pressa enda fyrirvarinn stuttur) Hvað viljið þið svo gera á miðvikudaginn 22. des og 28. des? Eigum við að hafa æfingar þessa miðvikudaga? Ég mæli með æfingu 28. des vegna Vöslungsmótsins sem verður 7. des.
Commentið hér bæði um æfingar og þátttöku á Völsungsmóti.
Knús

» 10 hafa sagt sína skoðun

08.12.2011 21:50:44 / Magga

MakaÞorraBlak

:|Vegna óyfirstíganlegra erfiðleika við tímaleit fyrir makablakið og leiðinlega fáa jólafrísdaga þá ákvað Gúa stílsins vegna að breyta planinu. Við höldum makablak á Þorranum og gott Þorrablót á eftir. Nóg um Þorra í bili:lol:

Á sunnudaginn eru hinsvegar allir makar og stálpuð börn velkomin í blaktímann í Höllinni.:haha::haha::haha::haha:

Skemmtilega skemmtinefndin, sem ekki ætlar að halda litlu jól, eða hafa kökukvöld. Nefndin er nefnilega að passa línurnar.

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.11.2011 14:08:49 / Guðrun

Æfingar þessa vikuna

Hæ, hæ og hó. Takk fyrir síðast skvísurnar mínar :) Ég kem ekki á æfingu í kvöld v/foreldahittings með 8. bekk og ekki heldur á miðvikudaginn því þá kemur Helga heim...jibbííí ;) Kv. Guðrún sem er alveg að deyja úr spenningi.

» 9 hafa sagt sína skoðun

24.11.2011 13:34:17 / Ester

KA mótið

Niðurröðun í A og B er eftirfarandi:

A:
Gúa, Hófí, Kristjana, Ólöf, Solla, Þorgerður, Helga Guðrún og Erla

B:
Ester, Día, Halla Jens, Guðrún, Halla H., Hrafnhildur, Magga og Thelma

Leikjaniðurröðun liðanna er fyrirliggjandi á blak.is

» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 53
Talning
Eftir 91 daga
Öldungamót á Tröllaskaga - Trölli 2012
Heimsóknir
Í dag:  45  Alls: 166521
Klukkan
Dagatal